Höfundar

Sigrún Alda Sigfúsdóttir

Sigrún Alda Sigfúsdóttir er fædd árið 1988 og ólst upp í Skagafirði. Í dag býr hún ásamt eiginmanni sínum og þremur börnum í Mosfellsbær. Hún
lauk MS-prófi í talmeinafræði frá Háskóla Íslands árið 2018 og starfar í dag sem talmeinafræðingur hjá Reykjavíkurborg.

Árið 2020 birti Sigrún Alda, ásamt Jóhönnu T. Einarsdóttur, Þorláki Karlssyni og Írisi Ösp Bergþórsdóttur, ritrýnda grein í Netlu Veftímariti um uppeldi og menntun. Greinin ber heitið Orðaforðakennsla með sögulestri fyrir börn með málþroskaröskun og fjallar um samanburð á áhrifum beinnar og óbeinnar orðaforðakennslu hjá börnum með málþroskaröskun. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að bein kennsla leiddi til betri árangurs í orðaforðaþróun barnanna sem er meðal annars kveikjan að verkefninu og bókinni Amelía og Óliver.


Sigrún brennur fyrir mikilvægi þess að lesa bækur fyrir börn og leggur mikið upp úr því að upplýsa og fræða foreldra um mikilvægi lesturs.

Kristín Björg Sigurvinsdóttir

KKristín Björg Sigurvinsdóttir er fædd árið 1992 og býr í Reykjavík ásamt eiginmanni sínum og börnum. Hún lauk BA- og meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands og starfaði sem lögfræðingur í tvö ár.
Árið 2019 ákvað hún að elta drauminn um að gefa út bók sem hún skrifaði á unglingsárunum, Dóttir hafsins, og er það fyrsta bókin í þríleiknum Dulstafir. Handritið lá í skúffu í nærri tólf ár þar til Kristín tók það upp að nýju eftir háskólanámið og endurskrifaði það. Bókin kom út árið 2020 og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki barna- og ungmennabókmennta sama ár.

Kristín hefur gefið út fleiri bækur í Dulstafa þríleiknum, þar á meðal Bronsharpan, sem hlaut tilnefningu til Fjöruverðlaunanna og var valin besta barna- og ungmennabók ársins af bóksölum árið 2022. Þriðja bókin, Orrustan um Renóru, kom út árið 2023 og árið 2024 gaf hún út bókina Ráðgátugleraugun. Amelía og Óliver er fimmta bókin hennar.

Kristín er mikill bókaunnandi og hefur sérstakan áhuga á ævintýra- og fantasíubókmenntum enda voru það bækurnar sem kveiktu lestraráhugann hjá henni á unga aldri.

Kristín Björg á facebook
Kristín Björg á instagram
Heimasíða: https://kbsig.is/