Álfakrílin

Álfakrílin er ný íslensk barnabók sem gefin er út af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu árið 2025. Bókinni verður dreift í alla leik- og grunnskóla landsins.

Höfundar hennar eru Kristín Björg Sigurvinsdóttir rithöfundur, Sigrún Alda Sigfúsdóttir talmeinafræðingur og Bergrún Íris Sævarsdóttir myndhöfundur. Bókin er ætluð börnum á leikskóla- og yngsta stigi grunnskóla, sem og nemendum sem eru að stíga sín fyrstu skref í íslensku sem öðru tungumáli.

Um verkefnið

Fremst eru leiðbeiningar um hvernig hægt er að lesa bókina á sem árangursríkastan hátt. Aftast eru skemmtileg verkefni til að dýpka þekkingu barna á textanum. Bókinni mun einnig fylgja hugmyndabanki en þar verður hægt að finna fjölbreyttar og skapandi leiðir til að vinna með eflingu orðaforða og örva málnotkun barna, tjáningu og samskiptifærni.

Sagan um Nönu og Nóa er bæði skemmtileg og hrífandi og hefur það að markmiði að auka orðaforða barna.

Bókina má sækja hér í PDF eða lesa á netinu hér