Útgáfuhóf

Blásið var til útgáfuhófs á Kirkjusandi í Reykjavík í tilefni útgáfu á barnabókinni Amelíu & Óliver þar sem um 80 manns mættu í léttar veitingar og höfundar héldu kynningu á bókinni. Krakkarnir á viðburðinum fengu litablöð úr bókinni og sannkölluð vorgleði í tilefni útgáfunnar.

Amelía og Óliver

Bókin var í forsölu og seldust yfir 80 áritaðar bækur á staðnum en hægt er að nálgast bókina í vefverslun Bókabeitunnar hér og öllum helstu verslunum landsins eins og Eymundsson, Hagkaup og fleiri stöðum.

  • Bókin er á 4.490 kr í vefverslun Bókabeitunnar hér

  • Amelía og Óliver eru fjörug systkini. Dag einn eru þau úti að leika sér þegar þau hitta TRÖLL! Amelía og Óliver verða hrædd en komast fljótt að því að tröllið vildi bara leika. Það reynist hægara sagt en gert að leika við tröll en systkinin deyja ekki ráðalaus.

  • Fyrir börn með málþroskaröskun er markviss lestur með orðaskýringum sérlega gagnlegur, þar sem hann veitir þeim nauðsynlega aðstoð við að skilja og nota ný orð í fjölbreyttu samhengi. Með slíkri nálgun má draga úr málþroskatengdum hindrunum og stuðla að jöfnum tækifærum í námi og samskiptum.