Styrkur frá Barnavinafélaginu Sumargjöf

Sigrún og Kristín hjá Orðabrunn tóku á móti styrk frá Barnavinafélaginu Sumargjöf á vordögum 2025 sem ætlað er til útgáfu næstu bókar Amelíu og Ólivers sem lenda aftur í spennandi ævintýrum með tröllinu Blæ.

Kristín Hagalín formaður afhendir Sigrúnu Öldu styrkinn

Barnavinafélagið Sumargjöf hefur átt stóran þátt í að bæta aðbúnað og tómstundastarf barna í Reykjavík frá stofnun árið 1924. Það var fyrst til að bjóða upp á skipulagt sumarstarf fyrir börn, byggði og rak marga af fyrstu leikvöllum borgarinnar og stuðlaði að því að list og fagurt umhverfi yrði hluti af leik barna. Félagið hafði jafnframt sterk félagsleg gildi og lagði áherslu á að öll börn hefðu jöfn tækifæri til leiks og útiveru, óháð efnahag. Starf þess hafði varanleg áhrif á þróun leikvalla, frístundastarfs og barnamenningar á Íslandi.

Styrkhafar 2025

Previous
Previous

Sigrún og Kristín skrifa bók fyrir MMS

Next
Next

Viðtal í Skagfirska blaðinu Feyki