Sigrún og Kristín skrifa bók fyrir MMS
Álfakrílin er ný íslensk barnabók sem gefin er út af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu árið 2025. Bókinni verður dreift í alla leik- og grunnskóla landsins.
Höfundar hennar eru Kristín Björg Sigurvinsdóttir rithöfundur, Sigrún Alda Sigfúsdóttir talmeinafræðingur og Bergrún Íris Sævarsdóttir myndhöfundur. Bókin er ætluð börnum á leikskóla- og yngsta stigi grunnskóla, sem og nemendum sem eru að stíga sín fyrstu skref í íslensku sem öðru tungumáli.
Um verkefnið
Fremst eru leiðbeiningar um hvernig hægt er að lesa bókina á sem árangursríkastan hátt. Aftast eru skemmtileg verkefni til að dýpka þekkingu barna á textanum. Bókinni mun einnig fylgja hugmyndabanki en þar verður hægt að finna fjölbreyttar og skapandi leiðir til að vinna með eflingu orðaforða og örva málnotkun barna, tjáningu og samskiptifærni.
Álfakrílin er 40 blaðsíðna löng og hefur að geyma fallegt myndefni eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur, sem einnig er einn af höfundum bókarinnar ásamt Kristínu Björgu Sigurvinsdóttur rithöfundi og Sigrúnu Öldu Sigfúsdóttur talmeinafræðingi.
📚 Skólastig: Leikskóli, yngsta stig grunnskóla
📅 Útgáfuár: 2025
📄 Lengd: 40 blaðsíður
Þessi bók er því gagnlegt námstæki fyrir kennara og foreldra sem vilja styðja við málþroska og orðaforðauppbyggingu barna á skemmtilegan og skapandi hátt.
Nánar um bókina og verkefnið á heimasíðu MMS má einnig finna hér