Amelía og Óliver fara í bústað (Bók 2)

Amelía og Óliver er önnur bók Kristínar og Sigrúnar.

Í þetta skipti fara Amelía og Óliver í bústað með ömmu og mömmu. Þar hitta þau óvænt tröllið Blæ sem er í heimsókn hjá frænku sinni. Saman fara þau í berjamó og lenda í alls konar ævintýrum í fallegri íslenskri náttúru.

Amelía og Óliver er hugljúf saga um vináttu og leikgleði.

Amelía og Óliver (Bók 1)

Amelía og Óliver er fyrsta bók Kristínar og Sigrúnar um fjörug systkini. Dag einn eru þau úti að leika sér þegar þau hitta TRÖLL! Amelía og Óliver verða hrædd en komast fljótt að því að tröllið vildi bara leika. Það reynist hægara sagt en gert að leika við tröll en systkinin deyja ekki ráðalaus.

Amelía og Óliver er íslenskt hugvit og hugljúf íslensk saga um vináttu og leikgleði.

Styrkur

Verkefnið hlaut styrk frá Þróunarsjóði námsgagna árið 2024 undir heitinu Orðaforðaþjálfun í gegnum lestur.

Höfundar

  • Sigrún Alda Sigfúsdóttir

    Talmeinafræðingur

  • Kristín Björg Sigurvinsdóttir

    Rithöfundur

Útgáfuhóf 2025

Blásið var til útgáfuhófs í tilefni útgáfu á fyrstu barnabók Amelía & Ólivers þar sem um 80 manns mættu í léttar veitingar og kynningu á bókinni. Krakkarnir fengu litablöð úr bókinni og sannkölluð vorgleði í tilefni útgáfunnar.

Hvar
Kirkjusandi

Dagsetning
06/04/2025